Draumar að hausti
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions
Sat 05.09.2026 16:00
Draumar að hausti hefjast á sönglögum Elínar Gunnlaugsdóttur við ljóð eftir Jón úr Vör sem færa á einstakan hátt boðskap um birtu, frið og gildi lífsins hér á jörð. Tónskáldin Charles Ross og Wes Stephens starfa á Austurlandi sömdu verkin Two Lullabies og – skerry – gagngert fyrir þessa tónleika. Vögguvísurnar tileinkar Wes dætrum sínum en Charles semur sérstakt tungumál og tóna fyrir hönd skers út af Kolfreyjustað við Fáskrúðsfjörð sem hefur tileinkað sér glefsur úr spjalli, hrópum og köllum sem berast með vindinum frá ströndu og bátaumferð um fjörðinn og mótast af fuglasöng, veðri og vindum.
Frá þessum nýstárlega en um leið nálæga hljóðheimi, snúum við okkur að kunnuglegra tónmáli franskrar tónlistar, meðal annars með harmrænni eftirsjá og draumum um liðna tíð í verkum
Massenet, Fauré og Ravel á meðan Satie flakkar milli djúprar löngunar og glettni. Tónskáldin nýta ljóðræna möguleika hljóðfæra og raddar til hins ýtrasta og Poulenc færir okkur annars vegar draum um liðna tíð og minningar um stundir sem aldrei gleymast, þó allt annað hverfi í gleymsku þessa heims og hins vegar einlæga Maríubæn fyrir friði, hinum sanna fjársjóði og uppsprettu lífs og gleði hér á jörðu.
Ásdís, Hlín og Steinunn hafa unnið saman í rúm þrjú ár og munu flytja efnisskránna fyrir norðan og austan að tónleikunum loknum.
Hlín Pétursdóttir Behrens sópran, Ásdís Arnardóttir, sellóleikari og Steinunn Hailer Halldórsdóttir píanóleikari
Performers
-
Hlín Pétursdóttir BehrensSöngkona
-
Ásdís Arnardóttir
Cellist performing at the event.
-
Elín Gunnlaugsdóttir
Composer known for her works for violin and piano.
-
Charles Rosscharlesross- born 1965 –
-grew up in prestwick-
-usually lives in a small red house in eiðar (east iceland)
- occasionally involved in icelandic experimental music scene: composition, improv, folk and contemporary performance - taught world music in the icelandic academy of arts – “artist-in-residence” egilsstadir 2007-2008 - hosted “eidar sonic arts project” involving international contemporary musicians in collaborative series of thematically-linked concerts – has worked with ilan volkov on several occasions, mostly using the „Sandbox“ comprov array – is interested in comprov, real-time composing and exploring HOW we produce music – how we are in the process of creating new musicalities-
- compositions tend to be a retrieval of musical atavisms played out in a post-musical context - not really musical archaeology – more like a faked séance