Brothætt: Ritual II - Viðgerðin
Dansverkstaedid, Hjarðarhagi 47, 101 Reykjavík Directions
Mon Sep 14 2026 12:00
Í haust býður Steinunn Knúts Önnudóttir gestum í persónulegt viðgerðarrítúal í Stúdíó 3 á Dansverkstæðinu.
Gestir koma með brotinn hlut úr leir sem þeim þykir vænt um og reynslu af broti sem þeir vilja gefa gaum. Viðgerðin fer fram í hæglæti og alúð. Brotunum er raðað saman, þau límd og sprungurnar gylltar, á meðan gestir eru leiddir í gegnum hugleiðingar um eigin reynslu af því brothætta í lífinu.
Brotni hluturinn má vera í að hámarki fimm brotum.
Viðgerðin er annar hluti Brothætt, röð rítúala sem sefa tilfinningar skorts og ófullkomleika.
Tímar
September
Mánudagur 14. september kl. 12:00, 14:00 og 16:00
Mánudagur 21. september kl. 12:00, 14:00 og 16:00
Mánudagur 28. september kl. 12:00, 14:00 og 16:00
Október
Laugardagur 3. október kl. 11:00, 13:00 og 15:00
Laugardagur 24. október kl. 11:00, 13:00 og 15:00
Nóvember
Laugardagur 14. nóvember kl. 11:00, 13:00 og 15:00
Staður: Stúdíó 3, Dansverkstæðið, Hjarðarhaga 47, 107 Reykjavík
Lengd: 90–120 mínútur
Verð: 5900 kr. á mann
Fjöldi: 2–4 þátttakendur í hverju rítúali
Bókanir: fallegt@fallegt.com
Tilgreinið óskatíma og fjölda þátttakenda við bókun.