Fjármál og fjárfestingar
Vinnustofa Kjarval - Fantasía, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Directions
Wed Oct 07 2026 09:00
Lifandi og hagnýtt námskeið þar sem þú færð beina leiðsögn, getur spurt jafnóðum og lærir með öðrum.Á ég að borga niður skuldir, safna fyrir óvæntum útgjöldum eða byrja að fjárfesta? Og hvernig veit ég hvaða fjárfestingar henta mér?
Á þessu þriggja tíma námskeiði skoðum við hvað borgar sig að setja í forgang og hvernig hægt er að fá betri yfirsýn yfir fjármálin. Við förum yfir helstu fjárfestingarleiðir og það sem þarf að hafa í huga áður en ákvörðun er tekin. Við skoðum einnig hvernig hægt er að nýta gervigreind við fjármálin.
Við skoðum hvernig hægt er að byggja upp vel dreift eignasafn sem tekur mið af markmiðum hvers og eins. Við ræðum líka hvaða áhrif tilfinningar og samanburður geta haft á ákvarðanir okkar og hvort peningarnir séu í raun að bæta lífið.Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja ná betri tökum á eigin fjármálum og þeim sem eru þegar byrjaðir að fjárfesta en vilja skilja betur hvernig eignasafnið þeirra er samsett.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- Hvort borgi sig að greiða niður skuldir, byggja upp varasjóð eða fjárfesta
- Hvernig helstu sparnaðar- og fjárfestingarleiðir virka og hvernig þú velur það sem hentar þér
- Hvað vísitölusjóðir eru og hvernig hægt er að fjárfesta í þeim frá Íslandi
- Hvernig þú byggir upp vel dreift eignasafn og aðlagar áhættuna þegar aðstæður breytast
- Hvaða áhrif kostnaður og skattar hafa á fjárfestingar og hvernig verðbólga getur rýrt verðmæti þeirra
- Hvernig þú getur nýtt gervigreind til að fá betri yfirsýn, skoða ólíkar sviðsmyndir og undirbúa fjármálaákvarðanir