HamingjuZumba í Suðurbæjarlaug

HamingjuZumba í Suðurbæjarlaug

Suðurbæjarlaug Swimming Pool, Hringbraut 77, 220 Hafnarfjörður Directions

Thu Sep 17 2026 17:30

HaminguZumba í Suðurbæjarlaug - Fimmtudaginn 17. september kl.17:30

Komdu og hristu úr þér hversdagsleikann á HamingjuZumba í Suðurbæjarlaug á Hamingjudögum í Hafnarfirði 💃

Síkátu zumbínurnar leiða gleðina með fjöri, dansi og kraftmikilli tónlist sem fær brosið fram og líkamann á hreyfingu. Zumba er skemmtileg blanda af dansi og líkamsrækt þar sem aðalmarkmiðið er að hafa gaman og njóta stundarinnar saman 🤸

Engin reynsla er nauðsynleg og allir eru velkomnir að taka þátt, óháð aldri eða getu. Frítt er í sund fyrir þá sem mæta á viðburðinn, þannig að tilvalið er að njóta laugarinnar fyrir eða eftir zumbatímann 🏊‍♂️🏊‍♀️

Komdu með góða skapið, taktu þátt í gleðinni og fylltu á orkuna með dansi, tónlist og skemmtilegri samveru!

HamingjuZumba er hluti af Hamingjudögum í Hafnarfirði, sjá nánar 👉 hfj.is/hamingjudagar

Hlökkum til að sjá ykkur! 🤗