Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúsinu
Reykjavik, , Reykjavik Directions
Thu Dec 03 2026 20:00
JÓLIN Á SUÐUPUNKTI
Sýningin sem gerði allt vitlaust í fyrra snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann!
Nú mæta ofurkonurnar í Raddbandinu aftur - stressaðri, þreyttari og með enn fleiri bolta á lofti.
Við fylgjumst með ungum mæðrum undirbúa hin fullkomnu jól, án þess þó að gefa nokkuð eftir í móðurhlutverkinu. Ná þær að töfra fram heilög jól í tæka tíð eða tryllast þær á sjálfsafgreiðslukassanum í Bónus?
Leikkonur og höfundar verksins, Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir, fara á kostum í sýningu sem byggð er á sönnum atburðum sem hefðu líklega átt að vera einkamál.
Stórskemmtileg kvöldstund þar sem tónlist, leikhús og dans renna saman í eina allsherjar jólasprengju!
Raddbandið vakti einnig athygli fyrir fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó sem hlaut frábæra dóma og var talinn einn af hápunktum leikársins 2025 af menningargagnrýnanda Morgunblaðsins.
___________
Myndbrot:
https://www.youtube.com/watch?v=Em15NJY77pk
https://www.youtube.com/watch?v=vR0vXGZ_-rE&list=RDvR0vXGZ_-rE&start_radio=1
___________
Leikarar:
Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir, Viktoría Sigurðardóttir, Einar Bjartur Egilsson og Mímir Bjarki Pálmason
___________
Listrænir stjórnendur:
Lagatextar og leikgerð: Raddbandið
Tónlist: Ýmsir höfundar
Lýsing: Konrad Groen
Hljóðmynd: Konrad Groen
Leikmynd: Raddbandið
Búningar: Raddbandið
Kynningarefni: Bent Marinósson, Ágúst Þór Hafsteinsson og Þjóðleikhúsið
Sérstakar þakkir:
Guðjón Ragnarsson, Matthías Tryggvi Haraldsson, Sigurður Halldórsson, Stefanía Adolfsdóttir, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið