Partý bröns
Blik Bistro og grill, Æðarhöfði 36, 270 Mosfellsbær Directions
Sat Oct 10 2026 12:00
Nú er komið að því! Næsti Partý bröns á BlikBistro með burlesque-bragði með Margréti Maack og félögum!
12:00 Húsið er opnað
12:30 Borðhald hefst
13:00 Sýning hefst
DJ til kl. 16!
Brönshlaðborð, óviðjafnanleg sýning og FJÓRIR brönsdrykkir á 10.900!
Gleymdu rólegum laugardegi, hápunktur helgarinnar er fundinn. Villt, tryllt og spillt! Fáðu skemmtun fyrir næstum öll skilningarvitin!
Vinsamlega athugið að sýningin hentar ekki þeim sem óttast undir mannslíkamans og að brönsinn er fyrir 20 ára og eldri.
Fram koma:
💋 Margrét Maack – burlesquemamma Íslands
🎪 Ryan Shinji – sirkusfolinn seiðandi
🎭 Lucy Licious – brúðuburleskmærin dásamlega
✨ Jon Joni – hinn leggjalangi lostapinni
🥂 Cheeky Lane – partýljónið ótemjandi