Skynjunarleikur | Foreldramorgunn

Skynjunarleikur | Foreldramorgunn

Kópavogur library, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Directions

Thu Jan 28 2027 10:00

Bókasafn Kópavogs í samstarfi við Plánetu bjóða börnum og foreldrum að koma og fræðast um og upplifa heim skynjunarleiks!

Börnin geta tekið þátt í örvandi og skemmtilegri virkni með alls kyns áferðum, lyktum og litríkum efnivið sem er sérvalinn til að kveikja forvitni og efla sköpun. Á meðan geta foreldrarnir sótt sér fróðleik um gagnsemi skynjunarleiks og fengið innblástur að því hvernig best sé að setja hann upp heima á auðveldan og markvissan máta.

Á þessum foreldramorgni komast 50 að í einu (25 fullorðnir og 25 börn) svo við hvetjum fólk til að mæta tímanlega. Fyrstir koma - fyrstir komast að.

Komdu að leika, uppgötva og mynda tengsl!

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.

Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

Performers