Teygjur og slökun morguntímar - Mildi og mýkt fyrir líkama og huga
Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions
Mon Sep 14 2026 11:00
Mildi og Mýkt
Velkomin(n) í nærandi og róandi jógatíma þar sem mildi og mýkt er allsráðandi.
Við sameinum einfaldar teygjur, mjúkar hreyfingar og endum tímann á djúpslökun eða jóga nidra sem nærir bæði líkama og huga.
Markmið tímanna er að auka hreyfigetu, liðka og mýkja stífa og stirða vöðva en þetta er einnig áhrifarík leið til að minnka streitu og spennu sem situr víða í líkamanum og tengjast sjálfum sér á mildan og kærleiksríkan hátt. Með jóga nidra gefur þú taugakerfinu rými til að gefa eftir og róast.
Tíminn hentar flestum, óháð reynslu – eina sem þarf er að geta verið á dýnu á gólfi.
Engin fyrri jógareynsla nauðsynleg.
Mjúk hreyfing – Djúp næring – Innri ró
Kennari Iris Eiríksdóttir jóga og hugleiðslukennari.
mán og fimmtudaga (4 vikur 8 skipti) verð 25.000 kr
Mán og fimmtudaga ( 8 vikur 16 skipti verð 44.800 kr )
Skráning & upplýsingar: yogahusid@gmail.com