Tónleikar fyrrum félaga Unglingakórs Selfosskirkju
Selfosskirkja - church, Kirkjuvegur, 800 Selfoss Directions
Sun Sep 20 2026 17:00
Fyrrum félagar úr Unglingakór Selfosskirkju koma saman á ný og halda tónleika í Selfosskirkju sunnudaginn 20. september kl. 17:00. Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir og meðleikari Sólveig Anna Jónsdóttir.
Rætur starfsins má rekja aftur til ársins 1988 þegar Glúmur Gylfason stofnaði barnakór við Selfosskirkju. Stefán Þorleifsson kom síðar til liðs við Glúm og saman byggðu þeir upp öflugt starf og tókst að skapa aga og sönggleði sem er nauðsynleg til að ná fram fallegum söng.
Margrét Bóasdóttir tók síðar við stjórn Unglingakórsins og efldi enn frekar það góða starf sem Glúmur og Stefán höfðu lagt grunninn að. Margrét var ekki síður metnaðarfullur kórstjóri og henni tókst að byggja upp reyndan og samstilltan hóp sem gat tekist á við krefjandi verkefni af miklu öryggi.
Jörg Sondermann og Edit Molár tóku síðan við keflinu og Edit stýrir starfinu í dag af alúð og fagmennsku.
Á efnisskrá má finna margar gamlar perlur og þeirra á meðal verða Þó þú langförull legðir, Heyr himna smiður og Go Down Moses.
Tónleikarnir hefjast kl. 17:00 sunnudaginn 20. september.
Sérstakar þakkir hlýtur Héraðssjóður Suðurprófastsdæmis fyrir öflugan stuðning.
Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest!