Uppland Hafnarfjarðar: Helgadalur
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík, Iceland, Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík Directions
Sat Oct 17 2026 11:00
Dags: 17. okt 2026, kl. 11:00
Lengd göngu: 8-9 km
Hækkun: lítil sem engin
Tími: 2-3 klst
Upphafsstaður: Bílastæði á bílastæði við Helgafell
https://maps.app.goo.gl/hcgracqXjxSzmVmD9
Leiðarlýsing: Gangan hefst á bílastæðinu við Helgafell og fylgt leifum af gamalli vatnsveitu Hafnfirðinga í Helgadal. Þá er haldið að Húsfelli, systurfelli Helgafells, og gengið framhjá Valabóli sem stundum hefur verið nefnt fyrsta farfuglaheimilið á Íslandi áður en komið er að fjallinu. Þaðan er svo gengið að hinni kunnu eldstöð Búrfelli þaðan sem er ágætt útsýni til allra átta áður en haldið er í Helgadal sjálfan. Á bakaleiðinni mætti stika örlítinn hluta Selvogsgötu, þjóðleiðarinnar úr Selvogi í Hafnarfjörð.
Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir.